Finna fólk
Árangur og farsæld viðskiptavina og samstarfsaðila er lykilatriði í okkar velgengni og það sem við brennum fyrir. Við erum þekkt fyrir að skapa virði, veita faglega ráðgjöf og sérfræðiþekkingu.
Okkar metnaður er að viðskiptavinir kjósi okkur sem samstarfsaðila, því reynslan sýni að með okkur ná þeir bestum árangri.
Okkar velgengni felst í því að gera þitt starf auðveldara og farsælla.
Við búum yfir öflugu tengslaneti og höfum áratuga reynslu af því að byggja upp persónuleg sambönd, bæði við fyrirtæki og einstaklinga.
Við þekkjum markaðinn og fólkið. Við vitum að besta fólkið er oft viðkvæmt fyrir að sækja um störf, en við vitum hverjir það eru.
Matstæki á borð við getu- og hæfnipróf eða persónuleikamat eru réttmætar og áreiðanlegar aðferðir til að meta hvort umsækjandi hafi þá eiginleika sem þarf til að ná árangri í tilteknu starfi. Við hjá Vinnvinn erum í samstarfi við SHL og Facet5 og notum þau matstæki sem henta best hverju sinni.
Við notum „raunhæf verkefni“ sem matstæki þegar það á við og fer þá form verkefnisins eftir eðli starfsins. Einnig notum við „matsmiðstöð“ (assessment center), en þá eru lögð fram raunhæf verkefni, umsækjandi settur í raunhæfar aðstæður og lögð eru fyrir önnur matstæki eins og þarf.